30.3.2015 10:58 |
Hampiðjan - Fjárhagsdagatal30.3.2015 10:58Hampiðjan - FjárhagsdagatalHampiðjan ráðgerir að birta 6 mánaða uppgjör 2015 þann 27. ágúst 2014. |
30.3.2015 10:57 |
Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar hf.30.3.2015 10:57Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar hf.Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 27. mars 2015, var skýrsla
stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2014 samþykkt samhljóða.
Sjálfkjörið var í félagsstjórn. Formaður félagsstjórnar
Vilhjálmur Vilhjálmsson, kt. 141253-4849, Sóleyjarima 51, 112 Rvk.
Meðstjórnendur
Kristján Loftsson, kt. 170343-5499, Laugarásvegi 19, 104 Rvk.
Auður Kristín Árnadóttir, kt. 130774-3349, Austurgötu 37, 220 Hafnarfirði.
Guðmundur Ásgeirsson, kt. 170939-2479, Bollagarðar 12, Seltjarnarnesi
Sigrún Þorleifsdóttir, kt. 210568-2989, Starhólma 8, Kópavogi
Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar:
Tillaga um greiðslu arðs
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 27. mars 2015 samþykkir að greiddur verði
0,67 arður af hverjum hlut útistandandi hlutafjár til hluthafa, alls að
fjárhæð kr. 326.000.000,-. Arðurinn verði greiddur í viku 19. Síðasti
viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 27. mars, þ.e. viðskipti sem
fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum
31.mars. Arðleysisdagurinn er 30.mars.
Tillaga um þóknanir fyrir liðið starfsár
Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. ein milljón og tvö hundruð
þúsund, formaður fái þrefaldan hlut.
Tillaga um endurskoðunarfélag
Endurskoðunarfélag verði PricewaterhouseCoopers ehf.
Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 27. mars 2015 veitir stjórn félagsins
heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði
og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé
félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi
á markaði áður en kaupsamningur er gerður.
Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 27. mars 2015 samþykkti breytingar á
samþykktum félagsins einróma. Breytingarnar miða aðallega að því að auka
möguleika á rafrænum samskiptum og skráningu ásamt því að fella inn ákvæði um
kynjahlutföll og starfskjarastefnu og tryggja samræmi milli samþykktanna og
núverandi lagaákvæða. |
24.3.2015 16:38 |
Hampiðjan hf. - Framboð til stjórnar24.3.2015 16:38Hampiðjan hf. - Framboð til stjórnarEftirtaldir aðilar hafa boðið sig fram til setu í stjórn og til
stjórnarformennsku á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður 27. mars 2015.
Stjórnarformaður:
Vilhjálmur Vilhjálmsson, kt. 141253-4849, Sóleyjarima 51, 112 Reykjavík.
Meðstjórnendur:
-- Kristján Loftsson, kt. 170343-5499, Laugarásvegi 19, 104 Reykjavík.
-- Auður Kristín Árnadóttir, kt. 130774-3349, Austurgötu 37, 220 Hafnarfirði.
-- Guðmundur Ásgeirsson, kt. 170939-2479, Bollagarðar 12, Seltjarnarnesi.
-- Sigrún Þorleifsdóttir, kt. 210568-2989, Starhólma 8, 200 Kópavogi.
Nánari upplýsingar um frambjóðendur liggja frammi á skrifstofu félagsins. |
13.3.2015 17:53 |
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. 27. mars 201513.3.2015 17:53Aðalfundur Hampiðjunnar hf. 27. mars 2015Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík,
föstudaginn 27. mars 2015 og hefst kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins verða:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
1. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr.
hlutafélagalaga.
1. Breytingar á samþykktum félagsins en nýjar samþykktir verða bornar upp í
heild sinni því breytingarnar eru margþættar. Þær miða aðalega að því að
auka möguleika á rafrænum samskiptum og skráningu ásamt því að fella inn
ákvæði um kynjahlutföll og starfskjarastefnu og tryggja samræmi milli
samþykktana og núverandi lagaákvæða.
1. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, tillaga að nýjum samþykktum, svo og ársreikningur
félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis,
tveimur vikum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.
Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm virkum dögum fyrir upphaf
aðalfundar.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur
stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það
skriflega.
Stjórn Hampiðjunnar hf.Attachment (.pdf) Attachment (.pdf)
|
12.3.2015 18:12 |
Hampiðjan - Ársreikningur 201412.3.2015 18:12Hampiðjan - Ársreikningur 2014Árið 2014
-- Rekstrartekjur voru 54,0 m€ og jukust um 7,1% frá fyrra ári úr 50,4 m€.
-- Hagnaður var 7,7 m€ en var 7,6 m€ árið áður.
Lykilstærðir
-- EBITDA af reglulegri starfsemi fyrir utan einskiptiskostnað vegna
starfslokasamnings fv. forstjóra var 9,2 m€ en 7,8 m€ árið áður. Að teknu
tilliti til starfslokagreiðlunnar sem nam 1,6 m€ þá er EBITDA 7,6 m€.
-- Hlutdeild í hagnaði HB Granda var 3,2 m€ en var 3,3 m€ árið áður.
-- Heildareignir voru 95,1 m€ en í lok fyrra árs var efnahagurinn 88,7 m€.
-- Vaxtaberandi skuldir voru 22,8 m€ en voru 24,2 m€ árið áður.
-- Eiginfjárhlutfall var 66% en 63% árið áður.
-- Meðalfjöldi starfsmanna á árinu var 522 en var 509 árið þar á undan.
Rekstur
Rekstrartekjur samstæðunnar voru 54,0 m€ og jukust um 7,1% frá árinu áður.
Samstæðan samanstendur af sömu félögum og áður en með þeirri breytingu að Swan
Net USA í Seattle bættist í samstæðuna í ársbyrjun 2014 og rekstur Hampidjan
USA var að mestu lagður inn í Swan Net USA um mitt árið.
Rekstrarhagnaður af reglulegri starfsemi var 10,5% af rekstrartekjum að teknu
tilliti til einskiptiskostnaðar eða 5,6 m€ en var 11,7% í fyrra eða 5,9 m€.
Fjármunatekjur ásamt hlutdeild í hagnaði HB Granda að frádregnum
fjármagnsgjöldum voru 2,9 m€ til tekna en voru 2,2 m€ til tekna á fyrra ári.
Hagnaður ársins var 7,7 m€ en var 7,6 m€ árið 2013.
Efnahagur
Heildareignir voru 95,1 m€ og hafa hækkað úr 88,7 m€ í árslok 2013. Hækkunin
er tilkomin að mestu vegna innkomu Swan Net USA ásamt hagnaði ársins.
Eigið fé nam 62,6 m€, en af þeirri upphæð eru 7,8 m€ hlutdeild minnihluta í
eigin fé Swan Net Gundry á Írlandi, Swan Net USA, Fjarðaneta á Íslandi og
dótturfélags Cosmos Trawl í Danmörku.
Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í árslok 66%
af heildareignum samstæðunnar.
Vaxtaberandi skuldir námu í árslok 22,8 m€ og lækkuðu um 1,4 m€ frá ársbyrjun.
Helstu tölur í íslenskum krónum
Miðað við gengi krónunnar gagnvart evru þá er velta samstæðunnar 8,4
milljarðar ISK, EBITDA að teknu tillliti til einskiptiskostnaðar 1,2 milljarðar
og hagnaður svipuð tala eða 1,2 milljarðar. Efnahagurinn er 14,7 milljarðar,
skuldir 5,0 milljarðar og eigið fé 9,7 milljarðar.
Aðalfundur
Aðalfundur Hampiðjunnar verður haldinn föstudaginn 27. mars 2015 í fundarsal
félagsins að Skarfagörðum 4 í Reykjavík og hefst fundurinn klukkan 16:00.
Tillaga stjórnar um arðgreiðslu
Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2015 vegna rekstrarársins 2014 verði
greiddar 0,67 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 326 milljónir ISK. Arðurinn
verði greiddur í viku 19. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum
er 27. mars 2015, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í
hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 31. mars. Arðleysisdagurinn er 30.
mars.
Samþykkt ársreiknings
Ársreikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Hampiðjunnar hf. þann 12. mars
2015
Ársreikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar hf.,
www.hampidjan.is.
Hjörtur Erlendsson, forstjóri:
„Síðasta ár byrjaði rólega hvað sölu varðar en það lagaðist þegar leið á vorið.
Sérstaklega átti það við um sölu á efnum til veiðarfæragerðar og fullbúnum
veiðarfærum en þar kom tímabilið frá sumri fram að áramótum vel út. Lækkun á
olíuverði hafði áhrif á sölur á þeim mörkuðum Hampiðjunnar sem tengjast
olíuiðnaði en vegna þess að hráefni framleiðslunnar er að miklu leyti unnið úr
olíuefnum þá jafnast áhrifin að nokkru leyti út.
Undanfarin ár hefur sala samstæðunnar aukist ár frá ári bæði vegna innri og
ytri vaxtar og á árinu bættust við í samstæðuna stórt netaverkstæði í Seattle,
Swan Net USA og minna netaverkstæði í Strandby í Danmörku. Þessar viðbætur
tryggðu veltuaukingu samstæðunnar á árinu og munu í framhaldinu hafa jákvæð
áhrif á innri vöxt næstu árin. Einnig er verið að byggja upp öflugt
netaverkstæði í Klaksvik í Færeyjum ásamt útgerðarfyrirtækinu Varðin.
Rekstrarhagnaður félagsins hefur verið góður á undanförnum árum og einnig hafa
fjárfestingar í öðrum félögum, sem er mestmegnis 8,83% eignarhlutur í HB Granda
hf., skilað félaginu góðri ávöxtun. Lán hafa verið greidd niður undanfarin ár
samhliða því að fjárfest hefur verið í framleiðslutækjum og vöruþróun.
Jafnframt hefur fyrirtækjum fjölgað í samstæðunni.“
Frekari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson forstjóri í síma 664 3361.
Viðurkenndur ráðgjafi
Viðurkenndur ráðgjafi Hampiðjunnar á Nasdaq First North er PwC.Attachment (.pdf) Attachment (.pdf)
|
Meira |